We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Eitthvað fallegt

by Eitthvað fallegt

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      $10 USD  or more

     

  • Compact Disc (CD) + Digital Album

    The Eitthvað fallegt christmas album on CD form. Beautiful gift style design, with a little poster inside.

    Includes unlimited streaming of Eitthvað fallegt via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    ships out within 3 days
    Purchasable with gift card

      $18 USD or more 

     

1.
Nóttin var sú ágæt ein, í allri veröld ljósið skein, það er nú heimsins þrautarmein að þekkja' hann ei sem bæri. :,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,: Í Betlehem var það barnið fætt, sem best hefur andar sárin grætt, svo hafa englar um það rætt sem endurlausnarinn væri. :,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,: Fjármenn hrepptu fögnuð þann, þeir fundu bæði Guð og mann, í lágan stall var lagður hann, þó lausnarinn heimsins væri. :,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,: Lofið og dýrð á himnum hátt honum með englum syngjum þrátt, friður á jörðu og fengin sátt, fagni því menn sem bæri. :,: Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. :,:
2.
Bestu stundirnar (Kristjana Stefánsdóttir/Bergur Þór Ingólfsson) Ég sit hér ein og er að bíða eftir þér þú kemur heim til mín á jóladag. Rifja upp allar bestu stundirnar og hlusta á gamalt jólalag. Bestu stundirnar get ég fundið hvar hittumst við. Já, bestu stundirnar get ég fundið hvar hittumst við og höldum jólasið. Þá eru jólin.. úúú mér efst í hug. Því þarna um jólin... úúú fyrir áratug tókst líf mitt loksins á flug Með þér þá tók ég á flug Jólabarnið lifir enn í hjarta mér og syngur með er heyrir jólalag. Þeim getur ennþá fjölgað bestu stundunum ... Því þú kemur heim á jóladag.
3.
HIN FYRSTU JÓL Ingibjörg Þorbergs/Kristján frá Djúpalæk Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg, í dvala sig strætin þagga. Í bæn hlýtur svölun brotleg sál frá brunni himneskra dagga. Öll jörðin er sveipuð jólasnjó og jatan er ungbarns vagga. Og stjarna skín gegnum skýjahjúp með skærum lýsandi bjarma. Og inn í fjárhúsið birtan berst og barnið réttir út arma, en móðirin, sælasti svanni heims hún sefur með bros um hvarma. Og hjarðmaður birtist, um húsið allt ber höfga reykelsisangan. Í huga flytur hann himni þökk og hjalar við reifarstrangann. Svo gerir hann krossmark, krýpur fram og kyssir barnið á vangann.
4.
Jólakveðja 03:20
Jólakveðja Ragnheiður Gröndal/ Jóhannes úr Kötlum Það gengur stundum svo margt að mér að myrkvast hin bjarta sól en veistu þegar hjá þér ég er að þá eru alltaf jól. Ó, vertu ekki döpur vina mín þú veist að ég er hjá þér og hugsa alltaf jafn hlýtt til þín hvert á land sem ég fer. Hið heilaga kvöldið kveikir þú á kertum við rúmið mitt þá líð ég til þín í ljóssins trú og loga, við hjarta þitt. Og Jesús gefur þér gleði og frið og guðdómlegt frelsi sitt og englarnir syngja um sakleysið við sólelska barnið mitt. Og þegar að lífi lýkur hér við leitum í sama skjól þá verð ég hjá þér og þú hjá mér og þá verða alltaf jól.
5.
Hátíð fer að höndum ein Þjóðlag/Jóhannes úr Kötlum Hátíð fer að höndum ein hana vér allir prýðum lýðurinn tendri ljósin hrein líður að tíðum líður að helgum tíðum Gerast mun nú brautin bein bjart í geiminum víðum ljómandi kerti á lágri grein líður að tíðum líður að helgum tíðum Sæl mun dilla silkirein syninum undurfríðum leið ei verður þá lundin nein líður að tíðum líður að helgum tíðum Stjarnan á sinn augastein anda mun geislum blíðum loga fyrir hinn litla svein líður að tíðum líður að helgum tíðum Heimsins þagna harmakvein hörðum er linnir stríðum læknast og þá hin leyndu mein líður að tíðum líður að helgum tíðum.
6.
Í nótt er foldin skyggð Svavar Knútur Í nótt, í nótt er foldin skyggð, og geislar sólar dvína. Þó myrkur hylji heimsins byggð, mun hjartans ljósið skína. Er norðanvindur nístir sál, og næturkuldinn bítur, mun áfram brenna hjartans bál, þá birtu aldrei þrýtur. Og mitt hjarta er rótt þegar dimmust verður nótt, því ég veit þá lýsa stjörnurnar skærast. Og brátt veitist skjól þegar heilög koma jól, vonum okkar vísar ljósið skærast. Kom öll, kom eitt á vinamót og kærleiksorða njótum. Þá burt við þrífum sálarsót og sorgarmúra brjótum.
7.
Maríukvæði Atli Heimir Sveinsson/Halldór Laxness Hjálpa þú mér helg og væn, himnamóðirin bjarta: legðu mína bljúgu bæn barninu þínu að hjarta. Þá munu ávalt grösin græn í garðinum skarta, í garðinum mínum skarta. Bænheit rödd mín biður þín, blessuð meðal fljóða; vertu æ uns ævin dvín inntak minna ljóða; móðir guðs sé móðir mín og móðir þjóða, móðir allra þjóða. Kenn mér að fara í för þín ein, fram að himnaborðum, leiddu þennan litla svein, líkt og son þinn forðum. Líkt og Krists sé heyrn mín hrein að hlýða orðum, hlýða þínum orðum.
8.
Klukkur klingja Ragnheiður Gröndal Jólanna hátíð hefst í dag Úr lofti ég fanga lítið lag Jólabarnið færir gleði og frið Anda okkar nærir, fögnum við Á jólum þínum fyrstu skaltu fá Glás af gjöfum mömmu og pabba frá Jafnvel þó þú skiljir ekki en Út á hvað þau ganga fyrir guð og menn Heyrðu klukkur klingja og innhringja jólin okkar þá Jólaljósin björtu lýsa upp hjörtu helgri nóttu á Klukkur klingja Börnin syngja stór og smá Jólanna hátíð hefst í dag Í höfði mér ómar lítið lag Hugur leitar hærra uppávið Stjörnur á himni dansa hlið við hlið Jólin þín fyrstu koma brátt Hugur þinn opin hjartað smátt Lítill þú skilur ekki en Út á hvað þau ganga fyrir guð og menn Heyrðu klukkur klingja og innhringja jólin okkar þá Jólaljósin björtu lýsa upp hjörtu helgri nóttu á Klukkur klingja Börnin syngja stór og smá
9.
Jólin alls staðar Jón Sigurðsson/Jóhanna G. Erlingsson Jólin, jólin alls staðar með jólagleði og gjafirnar. Börnin stóreyg standa hjá og stara jólaljósin á. Jólaklukka boðskap ber um bjarta framtíð handa þér og brátt á himni hækkar sól, við höldum heilög jól.
10.
Ég þigg þennan pakka (Kristjana Stefánsdóttir/Bergur Þór Ingólfsson) Pakkinn sem er næst hjartanu á mér, dálítið beyglaður, lætur lítið yfir sér. En hann er frá þér og merki þess ber, með smáum fingrum föndraður, af kærleikanum ger. Ég þigg þennan pakka sem þú vilt gefa mér. Ég þigg hann og þakka það sem þú gefur mér. Þótt svartast sé skammdegi af sálu skín sól. Þín undurljúfa einlægni býr til heilög jól. Pakkinn sem er næst hjartanu á mér hann er búinn til úr ástinni sem býr í hjarta þér. Ég þigg þennan pakka sem þú vilt gefa mér. Ég þigg hann og þakka það sem þú gefur mér.
11.
Jólaþankar 03:15
Lag: Ragga Gröndal Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Þú nefnir orð. Ég segi jólasveinn. Þú hugsar: Snjór. Ég les í klakabönd. Og yfir hvelfist vetrarhiminn sem er undarlega stór. Við erum saman og við göngum hönd í hönd. Ég bið um hljóð. Þú raular gamalt lag. Mig dreymir frið. Þú skrifar stjörnublik. Og fyrir dyrum stendur hátíð sem er heilög gleðistund. Við greiðum englahár og teiknum strik við strik. Við skulum muna þetta leynda lífsins undur með ljós og von sem snertir barnsins hjarta. Í heimsins jötu liggur hugmynd og við óskum þess að eignast leiðarstef um framtíðina bjarta. Þú sendir kort. Ég hlusta á fréttirnar. Svo hljómar kór og gamalt tré er skreytt. En úti í löndum geisar ennþá grimm og blóðug orrahríð. Við biðjum guð að vernda okkur öll sem eitt.
12.
Höldum Jól 02:15
Höldum jól Svavar Knútur Glatt er geð í desember, gnægtarborðin svigna. Njótum við þá nálgast fer Nóttin ljúfa og lygna. Enginn grætur, allt er hljótt, yndislega jólanótt. Ljúfu börnin liggja í sæng, lúra undir móðurvæng. Höldum jól með hreinni sál, hjálpum þeim sem líða. Kveður heimsins kuldabál kærleiks höndin blíða.
13.
Jólagjöfin 03:37
Jólagjöfin Gustav Holst/Sverrir Pálsson Vetrardaginn dimma dapur vindur hvín Freðna jörðu felur fannhvít mjallarlín Skýjahrannir hylja himinljósin björt Nú fer senn að nálgast nóttin svört Gerast allt í einu undur dásamleg Stjörnuleiftur lýsa langt í austurveg Ótal englaraddir hljóma blítt og þýtt Friður yfir öllu allt er nýtt Fjármenn glaðir finna fæddann bjartan svein Hann er heimsins barna hjálparvonin ein Liggur lágt í jötu ljós úr augum skín Elska hans til okkar aldrei dvín Get ég goldið honum gulls ég fór á mis Myrru á ég enga né ilminn reykelsis Eina gjöf þá get ég gefið nú og hér Hjarta barns sem býr í brjósti mér

about

Jólaplatan Eitthvað fallegt kom út 26. nóvember 2013 hjá Dimmu útgáfu.
Hópinn Eitthvað fallegt skipa þau Svavar Knútur, Kristjana Stefáns og Ragga Gröndal.

Platan er einföld og látlaus og er henni ætlað að vera hlýtt og fallegt inn í aðventuna hjá þeim sem kjósa slíka stemmningu.

Á plötunni eru sex sígild jólalög og sjö frumsamin jólalög eftir listamennina þrjá.

credits

released November 26, 2013

Upptökur fóru fram í Hljóðrita Hafnafirði dagana 18. og 19.september og í Eskihlíð 18.-20.október 2013.

Upptökumenn voru Guðmundur Pétursson, Birkir Rafn Gíslason og Svavar

Knútur Kristinsson

Útsetningar: Ragnheiður Gröndal, Svavar Knútur og Kristjana Stefáns

Hljóðblöndun og mastering: Jón Skuggi

Hönnun umslags: Högni Sigþórsson

Teiknuð mynd: Ragnheiður Lóa Ólafsdóttir

Útgáfa: Dimma 2013

Svavar Knútur: Söngur, gítar, Ukulele, Ukulele bassi, bakraddir Glockenspiel, Ikea stóll, Samheitaorðabók, tambúrína, blokkflautur og klapp.

Ragnheiður Gröndal: Söngur, píanó og raddir

Kristjana Stefáns: Söngur, raddir, ukulele, harmoníum, Ikea stóll, tambúrína, og hrista.

Vox Populi: kórsöngur.

Guðmundur Pétursson: Harmonium.

license

all rights reserved

tags

about

Eitthvað fallegt Reykjavik, Iceland

contact / help

Contact Eitthvað fallegt

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this album or account

If you like Eitthvað fallegt, you may also like: